Lífið í Dverghólunum
27.10.2006 12:15:14 / us03

erum flutt...

erum að rembast við að koma upp nýrri síðu á barnaneti ;)

Bara leita undir nafninu óttar ;)

Tek mér pásu frá bloggheiminum, enda vitlaust að gera í skólanum, svona á þessum síðustu og verstu tímum


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 15:01:52 / us03

þriðjudagur..

jæja búin að skrifa við nokkrar myndir, fyrir þá sem voru að drepast úr forvitni hvað væri á myndunum ætti það að skýrast núna. 

Annars nóg að gera í verkefnavinnu og skipulagningu, hmmm

Kv Urður


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 14:41:53 / us03

nýjar myndir

Allt að gerast, myndir að uppfærast as we speak!, eða þannig.  :haha: og allir við hestaheilsu, sérstaklega eftir þennan snilldar hjólatúr í morgun.  Allt gott að frétta og allt það svo þetta verður stutt í dag.  En ég vara ykkur við það tekur smá tíma fyrir myndirnar að detta inn svo við bíðum bara róleg :P:P:P

Hilsen Urður


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 09:37:44 / us03

Endalaus frískleiki

Við vonum það allavega, það helsta sem skyggir á núna er að Elísa dóttir dagmömmunar er komin með mikinn hita og Óttar var ekki að fíla sig vel í gær, svo það er spurning hvernig dagurinn fer.  Vá löng setning...  Hann var semsagt ekki búin að vera hjá dagmömmu í 3 vikur og hefði því þurft að byrja aftur í aðlögun, en þar sem ég er komin langt eftirá í skólanum er það frekar erfitt.  Sérstaklega þar sem ég er núna í verknámi ;(  En vonandi gengur þetta allt upp og við getum öll haldið okkar striki. 

Annað mál á dagskrá er að nú þarf maður að fara að svitna svo um munar.  Við skötuhjú erum búin að kaupa okkur flug til Grænlands um páskana og er planið að fara í gönguskíðaferð og hrista af sér slenið.  Pjúff, mikið puð framundan og verður því vonandi lýst í beinni svo e-ð aðhald sé nú í gangi ;)  En meira um þetta síðar,

hafið það gott kæru lesendur og myndir koma inn með vormánuðum, kannski fyrr ef guð lofar ;)

Urður  

 

 




» 3 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 22:17:00 / us03

Veikindi...

Óttar er búinn að vera lasinn heima í tæpar tvær vikur og það finnst okkur sko ekki skemmtilegt. Eiginlega bara hundleiðinlegt þar sem pjakkurinn elskar að leika úti og ekki síst ef hann fær tækifæri til að stinga mann af. Núna grætur hann við útidyrahurðina ef einhver á leið þar um og þráir greinilega að komast út fyrir hússins dyr. Doksi bannaði honum að fara fet um þessa helgi því nú væri hann komin með kinnholusýkingu og eyrnabólgu í þokkabót ;( Semsagt kominn á sýklalyf í fyrsta sinn á ævinni. Hann fékk líka hitalækkandi mixtúru því hann var með 39,5 stiga hita. Reyndar er hann allur að koma til í dag, hann er allavega miklu betri en í gær og lofar það góðu. Aðrar fréttir eru þær að P er búinn með lokaritgerðina sína og þá var kátt í höllinni... Þetta var búinn að vera ansi strangur kafli en nú lokið, enda ekki seinna vænna þar sem ég er nú byrjuð í verknámi, og þá er alltaf nóg að gera. Í dag byrjuðum við svo á því að flytja til í húsinu og gera strákaherbergi, sem prinsinn flyst vonandi í þegar honum batnar. Jæja gott í bili, fleiri myndir koma seinna Yfir og út xxx, us

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 16:20:08 / us03

jæja

Semsagt ef þið gáið vel og vandlega ættuð þið að finna tengla undir ljósmyndum sem heita október, nóvember og desember, einnig skellti ég inn myndum af árshátíðarhaldi sem var þann 1 okt hér hjá okkur í Dverghólum 16 ;) 

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 13:45:27 / us03

hehemmm

Vegna fjölda áskoranna hef ég hrokkið aftur til lífs í bloggheiminum að minnsta kosti í dag.  E.t.v. tekst mér líka að troða inn nokkrum "gömlum" og nýjum myndum í tilefni dagsins:haha::haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2005 13:37:21 / us03

Hæ allir

Jæja netið komið í tímabundið lag, svo ég skellti inn nokkrum myndum...

Annars er allt brjálað þessa dagana, nóg að gera í verknámi, halda og mæta í veislur o.s.frv.

Óttar er alltaf að verða duglegri og duglegri, hann er alveg æstur  í að standa upp við allt sem hann sér, gildir einu hvort það er hægt eða ekki:)  Er aðeins farinn að ganga með og sleppa annarri hendi þegar hann er í miklum fíling, enda guttinn rétt dottinn í 10 mánuði :$:$

bless í bili...

Ǘȍ牢̀⌀ϭ ÕȌ䏈ϑ케ϰ곘ϐ

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2005 11:18:10 / us03

jæja

Hann sofnaður aftur svo ég gat klárað í þetta sinn.  Er semsagt búin að setja inn nýjar myndir í júlí og ágúst, endilega kíkið á það.  Reyndar tókum við svo lítið af myndum, maður verður greinilega að fara að herða sig í þeim efnum.  :haha:

Jæja námsbækurnar og heimilishaldið bíður spennt eftir manni, svo....

Hafið það gott í rigningunni og gaman væri að heyra hvernig haustið legst í fólkið ;)

Þartilnæst Urður


» 12 hafa sagt sína skoðun

09.09.2005 10:53:47 / us03

Hvaða hvaða...

Maður man bara enn passwordin á síðuna, þetta getur þá ekki verið svo slæmt. En jæja þá er Elli.is kominn frá Kúbu og ég komin að tölvuskjánum að nýju. Öll próf búin í bili og skólinn byrjaður af fullum kraftil. Eins gott að slóra ekki í þeim efnum. Annars eru þetta skemmtileg fög og gaman að læra, híhí. Óttar er að venju hress og kátur, byrjaður í pössun hjá Kristu, og viti menn, fyrsta daginn fór drengurinn að kalla mamma mamma, (og líka mammammamm);) En það gengur ótrúlega vel og frábært að fá svona góða barnapíu, með leikfélaga og alles. Við Óttar fórum í fyrsta sundtímann í gær á framhaldsnámskeiðinu, og það var alveg brill. Það var eins og vítamínsprauta fyrir strákinn, æ hann er vaknaður meira seinna

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2005 00:33:12 / us03

hæmm

Sko, mín er búin að vera pínku dugleg að læra, en víst aldrei nóg ;(  Í staðin geri ég ótrúlegustu hluti eins og við mátti búast, en ókey þetta kemur allt, líka eins gott.

Fór aðeins að sigla í dag í Hvítá (kemur á óvart þar sem ég á að vera að læra) og það var stappað af fólki, 130+ og ég veit ekki hvað.  En auðvitað gekk allt eins og í sögu, frábært fólk og frábært crew, húrra fyrir því :haha:

Ef einhver er að pæla í því, hvernig sé að vera bara heima hjá sér um versló, þá er það í alvörunni ágætis tilbreyting, jahá.  Eina sem ég hef pínku ponsu áhyggjur af er auðvitað að hún Ilmur mín fari sér að voða á þjóðhátið.  Sko, Jón Helgi, það er eins gott að hún skilist heil heim...  En þar sem hún er dæmalaus og típýskur hrakfallabálkur, þá er best að krossleggja fingur, ókei.

En þið hin sem eruð hér og þar um landið, keyrið nú varlega heim, sérstaklega á mánudaginn, þið heyrðuð það sem konan sagði í útvarpinu, annars kveð ég bara

yfirogút  Urður


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.07.2005 13:26:40 / us03

Jæja, komnar myndir í júní og júlí albúmið og búið að skrifa við restina af ferðalaginu. 

Í dag er alveg ótrúlega gott veður, án þess að það sé sól.  P er að fara með túrista í Laugavegsgöngu í dag og er planið að snúa aftur á sunnudag.  Borgný og mamma eru á leiðinni í bæinn og ætti mér því ekki að leiðast um helgina ;)  P og Krista áttu afmæli á þriðjudag og eru nú 23 og 33 ára, híj híj, til hamingju með það :haha::haha:

Af lærdómi er það að frétta að bækurnar eru komnar upp á borð, en ekki mikið meira en það, ég bið því guð og lukkuna um aðstoð við að klessast á námsbækurnar.

Njótið góða veðursins og verið sæl

Urður


» 89 hafa sagt sína skoðun

18.07.2005 15:13:02 / us03

Góðan dag góðir hálsar...

Jæja þá er maður aftur kominn á Suðurlandið eftir 10 daga dvöl í Vestfirsku ölpunum.  Það var auðvitað nóg um að vera eins og venjulega, byrjaði með fjölskyldu"útilegu" á Skriðu, rétt hjá Bolungarvík.  Ekki var það nú af verri endanum, heil helgi fór í að eta á sig gat og hitta fjölskyldumeðlimi, (sjá myndasíðu).  Svo héldum við yfir til Þingeyrar city og þar var ýmislegt brallað, fórum að veiða, hjóluðum fyrir nes, þ.e. frá Þingeyri, yfir Hrafnseyrarheiðina yfir í Arnarfjörð, og inn í Dýrafjörð aftur.  Þetta er um 65km leið sem við fórum á rúmum 10 klukkutímum í sannkallaðri bongó blíðu.  Að endingu fórum við í brúðkaup þar sem Þórey og Elli giftu sig með pompi og prakt og var það endalaust gaman.  Til hamingju krúttin mín.

Nú tekur því bara lærdómur við í blíðunni :^):^):^) og vonandi einhver rútína hjá prinsinum.  Ég skelli svo inn myndum þegar batteríið er orðið hlaðið ;)  Hafði það gott í sólinni og sumrinu...

Urður 

āǒČ᭘ϫ⼺猯業敬獹献業敬捹湥牴污挮浯振瑡㌯⼶㘳ㅟ㕟⸷楧f

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2005 14:49:31 / us03

Halló allir !

Það er gaman að segja frá því að núna loksins eru nokkrar myndir búnar að bætast á síðuna, bæði undir mai albúm og ferðalag.  Ég hef ákveðið að gera (ekki alveg strax) stutta ferðasögu bara til að lýsa myndunum, en þetta eru svo margar myndir að það gæti tekið smá tíma :haha::haha:

Annars er ýmislegt að frétta af prinsinum á bænum; hann gerði sig stórann í gær og pissaði og kúkaði í klósettið eins og ekkert væri sjálfsagðara 8)  Borðaði tvö cheerios áðan og ef vel er að gáð, má sjá í tvær tönnslur í neðri góm. 

Á morgun ætlum við mæðgin svo á enn eitt flakkið og förum vestur á firði í nokkra daga, aldrei pása hjá þessum dreng:P:P:P

Annars erum við á fullu í dagmömmupælingum fyrir janúar 06 og ekki fengið þau svör sem við vonuðumst eftir, allt frá 20 upp í 86 börn á biðlista, hmmmm.  Verðum sennilega bara að vona það besta og bíða og sjá, þetta reddast vonandi allt saman.:$

Jæja best að kíkja aftur á myndasíðuna og reyna að koma einhverju í verk :lol:

Eigið góðan dag, Urður


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2005 15:33:13 / us03

ohhhhh

Hæ vitiði hvað, ég var búin að skrifa rosa langa og flotta ferðasögu á fimmtudaginn en allt þurrkaðist út og ég var svo fúl að andinn hefur ekki komið yfir mig aftur.  Við erum semsagt komin heim eftir langt og yndislegt ferðalag til suður Þýskalands og frönsku og svissnesku alpana.  Ef ég fæ andann aftur þá skrifa ég smá klausu ;)

Í dag er götugrill í Dverghólum og gríðarleg spenna fyrir því, allt að verða reddý og við bara að dúllast í garðinum (að venju).

Ég set svo inn myndir von bráðar, þangað til hafið það gott

Garðvinnukveðjur Urður


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3